DES

Nýtt blogg og nýtt ár

Það er nú ekki hægt að segja að blogg-gleðin sé að fara með mann Errm Vil nú samt óska ykkur gleðilegs árs og þakka það liðna Kissing

En það er nú samt allt gott að frétta héðan úr MiðsölunumSmile Mamma komin í kvöldskólann í FB og pabbi vinnur eins og brjálæðingur og er í útköllum og hjálparsveitar ferðum þess á milli Wink 

Ég er orðinn mjög duglegur við að bjarga mér sjálfur og finnst fátt skemmtilegra en að fara á klósettið og vera hrósað þegar mér tekst að gera eitthvað í það.. hleyp um allt og tilkynni öllum. Það er nefnilega verið að reyna að venja mig af bleiuTounge Fæ oft að vera bleiu laus heima og hleyp öllum stundum á klósettið en svo gleymi ég mér (og mamma að minna mig á að fara á klóið) og þá er ég allt í einu orðinn blautur, ekki mjög þægilegtFrown

Orðaforðinn er alltaf að aukast en ennþá vantar uppá setningarnar.. en þetta er allt að koma og ég get nú gert mig skiljanlegann í flestum tilvikumGrin Leikskólinn er að sjálfsögðu alltaf jafn skemmtilegur og þar er ég búinn að eignast fullt af vinum og þyl upp nöfnin á þeim öllum og fóstrunum líka.. og þegar ég fer að gráta vegna þess að ég er ósáttur, við foreldra mína eða ömmu og afa, þá kalla ég bara á Dagný eða Nönnu (fóstra og aðst.leikskólastjóri) og vona að þær bjargi mér! Þær hafa nú samt ekki ennþá komið fljúgandi til mín en það kemur vonandi einn daginn.. ég held alla vega í vonina!

Þar sem ég er orðinn svo stór strákur þá er ég farinn að sofna alveg sjálfur í mínu rúmi. Bara ég, pelinn og Sámur (bangsa-hundur sem vinkona ömmu og afa gaf mér). Fer alls ekki að sofa án Sáms! Það koma nú reyndar kvöld þar sem ég vil heldur sofna í mömmu og pabba eða ömmu og afa rúmi en það er nú ekki oft. Svo skríð ég stundum upp í til mömmu og pabba á morgnanna til að kúra aðeins á milli, það er svoooo gottSideways 

En þetta er orðið gott í bili..

Kv.Daníel leikskólastrákurCool


Allt og ekkert

Enn og aftur langt síðan síðast !

Það er nú samt ekkert mikið að frétta. Jólaprófin nálgast þannig að það er nóg að gera í skólanum og rúmlega það! Daníel er hæst ánægður á leikskólanum og er farinn að tala meira.. enda kominn tími til ;) Talar reyndar ekki í setningum en hann er að reyna að púsla saman setningum =) tilkynnti ömmu sinni í gær að hann væri búinn í baði og að hún ætti að taka hann uppúr "Hapa búin baba" ýkt duglegur :þ

Ég er að plana reunion fyrir árganginn minn úr grunnskóla og það verður 16.nóv :D Get ekki beðið!! Stefnir í góða mætingu.. sem betur fer !

Evan mín var að kaupa sér hús í Keflavík með honum Atla og eru þau á fullu að rústa því til að laga það aftur áður en þau flytja inn ásamt hundunum =) Til hamingju elskurnar :*

Annars hef ég ekki mikið meira að segja..

-Silja


Dýrin í Hálsaskógi sýkin!

Vá langt síðan síðast..

Það er margt búið að gerast!! Mín byrjuð í skólanum og allt í góðu þar Smile  Daníel stækkar og stækkar og vill ekkert gera nema vera úti að leika. Jú eitt annað vill hann reyndar gera.. Horfa á Dýrin í Hálsaskógi!! Drengurinn veit meira að segja hvernig diskurinn lítur út og setur sjálfur í spilarann og ýtir á play! Situr svo stjarfur og lifir sig þvílíkt inn í þetta allt saman. Lætur sér heldur ekkert nægja að horfa á diskinn einu sinni og fara svo að gera eitthvað annað.. nei nei.. það er staðið upp og ýtt aftur á play til að horfa aftur!! Held hann hafi horft 4 sinnum á þetta á sunnudaginn! Held hann sé skildur mömmu sinni með Dýrin í Hálsaskógi sýkina Whistling

Eiki kallinn gerir lítið annað en vinna og hjálparsveitast og nú bætast skátarnir við.. þannig það verður nóg að gera hjá honum í vetur Wink

Svo vil ég bara nota tækifærið og monta mig af stóra frænda mínum sem kom Fjölni í úrslit Bikarkeppninnar á dögunum.. og þar mæta þeir FH en Atli frændi er einmitt í láni frá þeim! Hann má reyndar ekki spila leikinnAngry en það er sama þeir munu pottþétt standa sig vel Fjölnismenn Grin

Svo minni ég alla á Ísland - Norður-Írland á morgun á Laugardalsvelli kl 1805.. þar mun ég vera í gæslu (eins og alltaf) og passa fótboltabullurnar Tounge Það er engin smá stemning sem myndast á svona leikjum.. sérstaklega Ísland - Spánn sem var á laugardaginn.. Allt kreisý!

En nú hef ég ekki meira að segja í bili..

Kv. -Silja-


Aðgerðin

Já þá er nú bara komið að þessu.. litli stubburinn okkar fer í aðgerðina á morgun Errm Hann á að mæta úppúr hádegi í dag í innskrift og fara í einhver tjekk og tekur það um tvo tíma, svo má hann fara heim og mætir aftur í fyrramálið. Við Eiki verðum að sjálfsögðu bæði hjá honum á morgun og svo fékk Eiki líka frí á fimmtudaginn í vinnunni til að vera hjá litla kútnum sínumSmile

Þetta mun vonandi allt ganga mjög vel og þá fær Daníel að fara heim eftir að hann vaknar og er aðeins búinn að jafna sig.. eða það skilst mér allavega Woundering Sumir segja nefnilega að hann eigi að vera yfir nótt á spítalanum en aðrir ekki.. en það kemur nú bara allt í ljós á eftir.

Ég reyndi að setja inn fullt af myndum um daginn en það virkaði ekki, vona að þetta reddist bráðum.

En annars er það að frétta að sæta strák að afi hans fær sko engann vinnufrið, Daníel snýr honum í kringum sig og ef hann fengi að ráða myndi afi ekkert gera nema halda á honum Tounge

Svo á ég að vera að byrja að vinna eftir helgi en ætla nú bara að sjá hvernig Daníel verður.. Sem bara við bossinn að fá að vera heima einum til tveim dögum lengur ef á þarf að halda.. Annars fær múttan mín bara að vera með hann Smile

Bless í bili.. Silja


Sumar og sól

Úff hvað það er gott að vera í fríi Cool Við mamma erum bara búin að vera að leika alla daga.. fórum á mánudaginn með Karen niðrí bæ og vorum allan daginn; gáfum öndunum brauð , sáum trúða að leika listir sínar, löbbuðum laugaveginn og sátum á Austurvelli í sólinni. Í gær fórum við mamma og Karen í heimsókn í Laugaland sem eru sumarbúðir á vegum styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Þar var rosa stuð og allir krakkarnir að knúsa mig og klappa mér (héldu greinilega að ég væri hundur). Svo í dag fór ég í sund með Hjördísi frænku, mömmur okkar fengu reyndar að koma með og mér fannst ótrúlega gaman í vatnsrennibrautunum Grin vildi sko ekkert vera of mikið í litlu barna brautinni, fór sko margar ferðir í stóru rennibrautina líka Wink 

Við erum líka flutt aftur til ömmu og afa í Miðsölum.. Gaman að fá að vera svona mikið hjá afa, vil helst ekki fara að sofa á kvöldin því það er svo gaman að leika og vera úti að hjóla.

Pabbi minn er bráðum að fara til útlanda með skátunum, fer 27.júlí og verður í 3 vikur. Mamma er að reyna að fá einhverja til að fara með sér á þjóðhátíð í Eyjum en það gengur víst frekar illa þar sem allir verða í útlöndum, að vinna eða langar ekki. Hún er sko ekki sátt kellan. Halla er samt að reyna að fá einhvern til að skipta við sig um vinnudaga til að komast með henni, eins gott að það takist annars verður allt brjál! Angry

En nú er um að gera að vera úti í sólinni.. það er svo gott veður.

Adios.. Daníel


Sumarfrí..

Við mamma höfum ákveðið að skella okkur í sumarfrí eftir helgi Smile leikskólinn verður lokaður í mánuð og mamma fer ekki til Englands með skátunum Undecided Ég þarf nefnilega að fara á spítala og láta taka úr mér háls- og nefkirtla og fá rör í eyrun Frown Þannig að við ætlum bara að leika okkur saman allann daginn í 3 vikur.. mamma er búin að lofa að vera dugleg að fara með mér í húsdýragarðinn, á tjörnina og á róló þannig okkur ætti ekki að leiðast mikið. Svo verðum við líka flutt aftur til ömmu og afa í Miðsölum og get leikið við þau inn á millli. Seinustu vikuna sem leikskólinn er lokaður verður amma svo í fríi þannig að ég þarf að passa að hún hafi eitthvað fyrir stafni og læt hana dekra við mig og leyfi mömmu að fara aftur í vinnunaCool Hún getur ekki beðið etir að Halli Bjössi (strákurinn sem hún sér um) komi úr Reykjadal.. Hann fer á Lyngás á mánudaginn og mamma ætlar að taka mig með sér í vinnuna og leyfa mér að hitta alla.. Allt hálf tómlegt þar núna víst, allir í Reykjadal eða í fríi.

Ég er svo duglegur að vera úti að ég er sólbrúnn í framan og á höndunum en hvergi annars staðar Wink ótrúlega flott..

Um síðustu helgi fór ég með mömmu á skátamót í Viðey. Gisti eina nótt í tjaldi og það var mjög gaman. Fékk að vaka frameftir og allir voru að leika við mig og gáfu mér allt sem mig langaði í Tounge Mjög hentugt að eiga svona skemmtilega frændur og frænkur og mömmur og pabba út um allt.

Svo er afmælið mitt alveg að koma og allir bankar keppast um að senda mér gjafir í pósti og hamingjuóskir.

Bless í bili.. Daníel sólarstrákur 


Í leikskóla er gaman..

Í gær var sumarhátíð á leikskólanum Smile Allir á leikskólanum voru persónur úr dýrunum í Hálsaskógi og ég var mús.. mömmu fannst ég ýkt krúttlegur Tounge Skoppa (úr Skoppa og Skrítla) kom en Skrítla var veik. Hún söng og dansaði og ég ákvað að skella mér til hennar og dansa með henni Wink Svo söng ég með krökkunum á deildinni lög úr Dýrunum í Hálsaskógi.. Allir fengu grillaðar pylsur og svala (ég drakk 4). Þetta var mjög skemmtilegt og mamma og Afi komu í heimsókn til mín og fór svo bara heim til afa og ömmu.. amma var reyndar ekki heima en við kíktum í vinnuna til hennar og keyptum tré í garðinn. Afi og amma eru nefnilega að gróðursetja í garðinum sínum.. rosa dugnaður Grin

Núna er ég samt í heimsókn hjá Hjördísi og Ísak að leika með dótið þeirra.. miklu skemmtilegra en dótið mitt Cool  

Bless í bili..  Daníel mús


Afmæli

Ég vil byrja á óska litla bró til hamingju með daginn LoL En það eru víst 17 ár síðan ég varð stóra systir Wink Úff hvað hann er heppinn að eiga svona góða systur... múhahaha Cool

Kjána Andri kom ekki með neina köku í vinnuna svo nú þarf ég að fara sjálf og kaupa köku.. ekkert sanngjarnt!!

En nú þarf ég að ná í barnið mitt á leikskólann og fara með hann til læknis..

leiter.. Silja


Ljóta veður

Ojjj bara hvað það er ógeðslegt veður.. Maður getur ekkert gert á svona dögum!!

En hvað um það.. Pabbi er kominn heim frá Belgíu (var hann ekki örugglega þar??Woundering) og Daníel er himinlifandi að leika sér með lest sem hann fékk frá útlandinu Smile 

Nú verð ég "yfirmaður" á stofunni sem ég vinn á Lyngási næstu 4 vikurnar.. Konan sem sér venjulega um stofuna er komin í sumarfrí og þar með ræð ég Wink Múhahahaha..Devil 

En ég ætlaði nú bara að kvarta undan veðrinu og monta mig yfir vinnunni..

Leiter..   Silja

 


Þaru bara allir í Dk.. já og ég er feit!!

Já samkvæmt Jakobi er ég feit (eða að fitna) þannig ég er hætt að borða nammi!!!!! Sjá heimsíðuna hans Cool 

En annars er nú allt í góðu og mín bara byrjuð að vinna allann daginn og Daníel á leikskólanum LoL 

Evan mín er komin heim frá DK með Atla sínum og tengdó.. eyddi aleigunni og er alsæl með lífið

Svo er Guðrún að fara til Kanada í MÁNUÐ á fimmtudaginn og kemur svo heim til að útskrifast úr Hraðbrau Grin Dugnaður á minni.. Svo fer hún í lýðháskóla í Dk í ágúst fram að jólum.. alltaf að yfirgefa mig Frown

Talandi um lýðháskóla þá er Kristín komin heim.. er að fara út í sveit að vinna á hóteli í sumar og þar er ekki netsamand eða gsm samband og mín í fjarbúð frá Dk Tounge 

En ég er farin að einbeita mér að myndinni sem ég á víst að vera að horfa á (Get Shorty)

Sí ja leiter.. Silja


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband